Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Annska
  • Netfang: annska@it.is
  • Staður: Arnardalur
  • Hjúskaparstaða: lofuð
  • Um mig: Iðka lögmál aðlöðunar

Auglýsing

Myndir

Háfleyga hornið...


Könnun

Áttu afmæli í uppáhalds árstíðinni þinni?

Þetta vikulega

26. júlí 2007 klukkan 00:32
Það vefst alveg fyrir mér hvort ég eigi að vera æðislega væmin og tala á djúpvitran hátt um móðurhlutverkið til að mynda, eða hvort ég eigi að vera heilög Annska af Arnardal og hella úr brunnum visku minnar, eða hvort ég eigi að slá um mig mig með hvílíkum einmuna húmor að þið andið ekki sökum hlátraskalla á meðan þið lesið. Kannski ætti ég að vera gáfnaljósið og skrifa hluti sem enginn skilur en allir vilja skilja og segja já það var nú ansi merkilegt hjá þér bloggið þarna á síðasta miðvikudag helst til að fá það upp úr mér hvað í ósköpunum ég var að meina.

Annars held ég bara að ég haldi áfram froðusnakkinu endrum og sinnum, fyrir það eitt að teljast áfram íbúi í bloggheimum :od

Annað slagið tek ég rúnt um bloggheima og nú sé ég að mál málanna virðist vera að vera á moggablogginu, hef leitt að því hugann að skipta yfir - bara til að eignast eitthvað sem heitir "bloggvinir." Annars held ég bara að ég haldi mig hér á bloggar - vinasnauðri. 

Best að blogga...

18. júlí 2007 klukkan 00:49
til hátíðabrigða.

Ég varla kann þá list þó lengur - get svo svarið það.

Ég er eins og undanfarið mest í því að vera mamma en er aðeins farin að hlaupa út undan mér í önnur hlutverk eins og knapa og morðingja.

Fór s.s. á reiðnámskeið með hann Blossa minn um sl. helgi og kom mér aftur í gírinn. Ég var búin að reyna sjálf í vikunni á undan og fór þá svona eins og 5 kílómetra göngutúr með kappann - ekki sjens að ég þorði af stað. Svona getur nú móðurhlutverkið leikið mann grátt Ullandi Ég ætla þó ekki að setja að ég hefði stokkið af stað eins og Lukku-Láki eftir árs fjarveru frá hestamennsku þó ég hefði ekki verið að eignast barn. Þetta reiðnámskeið kom því eins og sannkölluð himnasending.

Já og morðingjanafnbótin, þannig er mál með vexti að ég heyrði hvílíku stelka óperettuna hér úti í garði í morgun eftir að ég hleypti hundunum út og strax grunaði mig að það vissi ekki á gott svo ég stekk út til að finna Móu vera að leika sér að unga. Ég sá að hann var ekki alveg eins og hann átti að sér að vera og tek hundana inn og fer að huga að Fróða og vonaði heitt og innilega að unginn hefði bara verið í sjokki og myndi jafna sig. Ég fer út nokkru síðar, sé ungann í grasinu og áleit hann dauðan (vonaði það allavega). Ég afréð að skilja hann þar eftir, þar sem mér er ekki mjög vel við lífvana skepnur. Þegar við komum svo heim seinnipartinn bið ég Úlf að fjarlægja "líkið" sem hafði þá hreyft sig úr stað og var á lífi. Ég segi eins og vonda stjúpan við skógarhöggsmanninn að hann verði að taka ungann með sér og drepa hann. Úlfur kemur inn í hús eftir smá stund og ég spyr hvort hann hafi leyst verkið úr hendi og Úlfur sagði að fuglinn væri á lífi svo hann hefði bara fært hann. Vonda stjúpan klikkaðist þá og spurði hvort hann hefði ekki séð að unginn væri slasaður, en Úlfi var frekar sama um það sagði sér liði betur að vita af honum á lífi.
Ég er alin upp við það að það verði að lina þjáningar dýra eins fljótt og auðið er og alveg örugglega ekki láta slasaða skepnu bíða örlaga sinna heldur taka í taumana og hjálpa henni yfir móðuna miklu ef þess þyrfi með. Svo ég fór eftir unganum með múrstein og sendi hann sjóferðina löngu. Þetta var með því ömurlegra sem ég hef gert en ég sver að mér hefði liðið ver að vita af honum deyja hægt og rólega kannski næsta sólarhringinn - skólabókardæmi um no win situation.

stelkur

Picasa Web Albums....

12. júlí 2007 klukkan 00:16
er mikill vinur minn núna.

Ég er farin að nota Picasa um myndirnar mínar og það er alveg svívirðilega auðvelt að birta þær svo á netinu. Ég bara flokka aðeins og svo bæng.

Ég var að setja inn nokkrar myndir af Fróðaling

Sambandi náð...

10. júlí 2007 klukkan 02:16
Við umheiminn via internet. Það er náttúrulega bara frábært. Ótrúlegt hvað internetið spilar svakalega stóra rullu í lífi nútímafólks - mín allavega. Ég er nánast eins og það vanti á mig hausinn hafi ég ekki netið - en allavega þá er það komið á á nýjan leik í sveitinni og meiri líkur á bloggi frá frúnni. Ég er búin að setja inn smá brot af brúðkaupsmyndunum á vefalbúm sem Google var svo gott að láta mér í té

Hér má sjá afraksturinn

Lesendur reyndust sannspáir...

03. júlí 2007 klukkan 17:44

Hvað á barnið að heita?

13. maí 2007
Krúttlegu litlu nafni ( 8% / 8 atkvæði )
Nafni á alþjóðlegu nótunum ( 4% / 4 atkvæði )
Kjarngóðu íslensku nafni ( 64% / 67 atkvæði )
Frumlegu og framandi nafni ( 14% / 15 atkvæði )
Bara ósköp venjulegu nafni ( 10% / 11 atkvæði )

lent

03. júlí 2007 klukkan 17:42
Ég held að ég sé að komast aftur niður á jörðina eftir partýið mikla.

Við hjónakornin brunuðum suður á fimmtudag og sóttum Blossa hest í tamningu.
Komum heim á sunnudag og þá var frúin bara orðin drulluslöpp og lá bara í rúminu í gær. Það bráði reyndar fljótt af mér og tel ég úrvindu sökudólginn Ullandi kannski ekki skrýtið miðað við allt haveríið.

Ég er netlaus í sveitinni og því engar myndir frá brúðkaupi aldarinnar fyrr en það kemst á á nýjan leik.

Frú Arndal

26. júní 2007 klukkan 02:11

þá erum við herra og frú Arndal og sonurinn hefur fengið nafnið Fróði Örn Arndal (gengur hér undir nafninu litli drengurinn með langa nafnið ;o)

Brúðkaupið komst í fréttirnar

og líka á bb og mbl


Þetta var yndislegt - svo blessuð sem við erum.

hjónin



Brúðkaupsgjafir...

14. júní 2007 klukkan 23:22
Það hafa margir verið að spyrja.

Við erum búin að opna brúðkaupsferðarreikning...

1128-05-401170 kt. 190475-5309

Við litla familían ætlum að fara eitthvað út fyrir landssteinana í haust í síðbúna honnýmún.

Gjafabréf frá Bræðrunum Ormsson gætu líka komið sér vel.

Við erum að fara að keyra suður í nótt. Axel og Thelma eru að fara að gifta sig á laugardaginn og við þurfum líka að kaupa eitt og annað í okkar brúðkaup.

Nema hvað - brúðarkjóllinn fékk dauðadóminn - HANN PASSAR EKKI - PRONTO!

Ég er búin að grenja úr mér augun yfir því - þurrka af mér skælurnar og huga að öðrum. Frekar óheppilegt. Þá er bara að draga fram loparann, gúmmítútturnar og fleyginn og hafa ALVÖRU sveitabrúðkaup.

Jæja best að pakka - power to the people

ÓMG...

10. júní 2007 klukkan 18:52

Brúðarkjóllinn sem ég pantaði af e-bay er kominn...Loksins. Það tók einungis 3 daga að fá hann hingað til lands frá Ástralíu...en heila viku að fá hann til Ísafjarðar frá Reykjavík! Hvað er bogið við þetta. Hann er klikkaðislegaSjúklega flottur, nema ég þarf aðeins að láta laga hann þar sem barmurinn er í anda Dolly Parton og passar ekki í hvað sem er.
Gísli Elís er að steggja bræður sína og skellti þeim til Köben, takk fyrir pent og Úlfur er þar núna - ekki laust við að ég sé smá abbó, sérstaklega í ljósi þess að drengurinn er búinn að vera í töluvert miklu stuði í dag og ekki gefið mömmu sinni færi á gera neitt annað en sinna honum. Það er óhætt að segja að hann sé "High maintenance baby" alveg örugglega ekki er hann eitt þessara viðhaldsfríu eintaka. Hann til að mynda er ekki hrifinn af hugmyndinni um að móðir hans nærist og það er eins og hann sé með skynjara á sér sem fer af stað í hvert sinn sem ég reyni að lauma ofan í mig matarbita og þá orgar drengurinn á sinn settlega hátt og mamma hans heldur að hann sé með sprungið milta en þá er hann bara að reyna að leggja sitt af mörkunum til að mamman passi í brúðarkjólinn á stóra deginum - duglegur drengur.

Annars var ég að setja inn nýjar myndir á barnalandssíðuna hans....


hressi gaurinn

Ó nei...

05. júní 2007 klukkan 23:28
Ég er búin að gera síðu á barnalandi Skömmustulegur

Ég hef alltaf verið æðislega hrokafull út í svoleiðis, nema hvað að maður getur nú ekki vanrækt blessað barnið og látið það vera heimasíðulaust!!! Það er líka spurning um að leyfa nýbakaðari móðurinni bara að vera með barnahjalið á einum stað og reyna svo að rífa mig úr brjóstaþokunni annað veifið og skella einhverju hér inn.

Heimasíða dalaprinsins