Ljúft
Fróði byrjaði í aðlögun hjá Dóru dagmömmu í morgun og eins og ég hef beðið eftir því að hann komist í gæslu, þá líður mér núna eins og það sé verið að slíta úr mér hjartað! Elsku litli gullmúsarsnúðurinn hennar mömmu sinnar að verða stór - þetta er nú einn staksteinninn í lífi hans.....og mínu. Það er magnað að kunna að sleppa tökunum þegar það á við og hún Dóra virkar svo sannarlega traustsins verð, ég veit bara ekkert hvað ég á að gera við mig þegar ég skyndilega hef tíma til að sinna verkefnunum mínum - eða sjáum til.
Hér er allt að fara á fullt við að reka síðustu smiðshöggin í fjósið, þannig við fáum veitingaleyfið. Þetta er rosa skemmtilegt og ég hlakka mikið til að ýta þessu skipi úr vör. Svo er ég einmitt líka að leggja loka-loka hönd á viðskiptaáætlunina góðu, er að senda hana frá mér í fyrsta sinn á morgun.....verulega spennandi.
Sólsetrin í dalnum þessa dagna eru alger draumur eins og þessar myndir frá því í síðustu viku bera með sér.

ég og guð á dansgólfinu - og í lífinu
Ég komst í kynni við 5 rhythma dans fyrir um 9 árum síðan. Ég var þá búin að vera í hinni vinsælu leit að sjálfri mér í um þrjú ár og gengið svona upp og ofan. Það hafði margt áunnist svo sem, en í tilfinningalífinu virtist samt vera mikill aðskilnaður, það skorti alltaf upplifunina að vera heil. Það var eins og ég væri tvær, algjörlega aðskildar. Ekki svo að skilja að ég hafi ekki upplifað margbreytileika minn eftir að ég fór að dansa, en ég er ekki lengur haus og líkami sem virðast ekkert hafa að gera með hvort annað – ég er heil.
Dansinn uppgötvaði ég eftir nokkrum krókaleiðum, ég var að vinna á skemmtiferðaskipi og hafði ekki mikinn aðgang að sjálfshjálp af nokkru tagi þar, svo ég fór að dansa. Ég áttaði mig á því að dansinn var að gera eitthvað fyrir mig sem ekkert annað þar var að gera. Mér fannst ekki líklegt að ég væri að finna upp hjólið, svo þegar ég kom heim sló ég á þráðinn til Guðrúnar Bergmann og spurði hana hvort það væri ekki einhversstaðar hægt að finna einhvern „andlegan dans.“ Þarna var ég komin í ágætis vinnu og útlit fyrir (utan frá séð) að ég væri kannski loksins að festa einhversstaðar rætur. Guðrún sendi mér bók Gabrielle Roth „Maps to ecstasy“ og fyrir mig var ekki aftur snúið, allt inn í mér öskraði að þetta væri svarið sem ég leitaði að. Ég sagði upp vinnunni og íbúðinni og fór til Ameríku til að finna þessa Gabrielle. Við tóku margir mánuðir þar sem ég ferðaðist heimshornanna á milli og sótti hvert dansnámskeiðið á fætur öðru, ég var orðin algerlega „húkkt.“
Mér fannst ég hafa himin höndum tekið, þarna gat ég farið á dansgólfið og fengið að vera hráasta útgáfan af sjálfi mér – bara ég nákvæmlega eins og ég var hverju sinni, berrössuð á sálinni. Ég upplifði mig örugga á dansgólfinu, þarna gat ég fengið að dansa, hlæja, gráta, syrgja og reiðast – og allt þar á milli. Það skipti ekki máli hvað ég var að upplifa það var eitthvað svo viðeigandi að gefa dansgólfinu það hverju sinni og mér fannst ég hitta guð. Með því á ég við að í dansinum hef ég náð að komast í ástand þar sem ég bara er, ástand þar sem ég er ekki lengur hugmyndafræðin um sjálfa mig og hinir ekki lengur hugmyndafræði mín um þá, ég bara er.
Mér hefur alltaf þótt gaman að dansa, en hinsvegar ekki verið svo góð í að dansa eftir einhverjum kúnstarinnar reglum og í 5 rhythmunum hef ég einmitt líka fengið íþróttahlutann af dæminu, þar sem ég fer og hreyfi líkamann og það er enginn sem segir mér nákvæmlega hvernig ég á að gera það. Það er ekkert rétt og rangt í dansinum, dansinn okkar er sagan okkar, þau sem við erum og það er ekkert rangt við það. Stundum er ég dansandi höfuð og eins súrt og það hljómar þá er það líka í lagi, ég fer eins djúpt í ölduna og ég er fær um hverju sinni. Stundum kemst ég bara grunnt en yfirleitt kemst ég djúpt inn í hina flæðandi öldu hreyfingar, sköpunar og áreynslulausrar tilveru. Það besta við þetta allt saman er að ég er enn að dansa og ég trúi því að dansinn verði hluti af tilveru minni allar götur lífið á enda.
Jaríjaríjarí
Annars er ég að spá hvort ég ætti að bjóða í Eurovision grill á fimmtudagskvöldið.....hvað segið þið um það?! Við eigum mega sjónvarp og murrika pönnu og fínasta kolagrill. allir koma með e-ð í púkkið og svo verður bara grillað og júrast - ég skal gera þar til gerð eyðublöð þar sem allir geta spáð til um úrslitin, hljómar vel ekki satt. Kannski er hægt að setja sjónvarpið í fjósið ef hópurinn verður mjög fjölmennur......hmmmmmm. Látið bara vita fyrir fimmtudag.
Ég skrapp hér yfir á næsta bæ áðan og fylgdist með yndislegum litlum lömbum koma í heiminn. Ohhhh, þetta er nú alveg dásamlegt, nema þá kannski fæðingarparturinn fyrir móðurina - ekki svo gaman. Mér fannst ég alveg skilja þó hvað hún var að fara í gegnum :op
Þetta hafðist....
Námskeiðið sem haldið er á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands var að þessu sinni samkennt með tveimur hópum, á Akureyri og Hellu. Þessir hópar hafa setið saman tvisvar á námskeiðstímanum, í Reykholti og Nesjavöllum við Þingvallavatn, og verið þannig saman um ákveðinn hluta kennslu og kynninga. Sú aðferð að tengja saman hópana á landsbyggðinni hefur verið notuð frá upphafi Brautargengisnámskeiðanna og hafa þannig myndast öflug tengsl yfir 200 kvenna á landsbyggðinni. Þessi tengsl geta konur nýtt sér þegar komið er af stað í fyrirtækjarekstur og þannig aukið samkeppnishæfni sína því mjög gagnlegt er að hafa aðgang að þekkingu og reynslu öflugra kvenna víðsvegar um landið.
Í vor fagnar Impra 10 ára afmæli Brautargengis en í heild hafa yfir 700 konur útskrifast frá því Brautargengisnámskeiðin hófust í Reykjavík. Á Ísafirði lýkur nú þriðja Brautargengisnámskeiðinu með útskrift tíu kvenna. Útskriftarhópurinn var sérlega glæsilegur og býr yfir mikilli starfsreynslu og menntun. Í þennan glæsta hóp bætast 52 aðrar konur síðar í mánuðinum þegar útskrifað verður frá Akureyri, Hellu og Reykjavík.
Hvatningarviðurkenningu Brautargengis á Ísafirði fékk Anna Sigríður Ólafsdóttir fyrir viðskiptaáætlun um heildræna ferðaþjónustu í Arnardal. Anna Sigríður hefur nýtt vinnuna við viðskiptaáætlunina vel til að skoða markhópinn og náð að búa sér til sérstöðu á markaðnum. Þessi vinna á án efa eftir að skila sér vel inn í fyrirtækið og verða til þess að efla starfsemi hennar.
Viðurkenningu fyrir bestu viðskiptaáætlunina hlaut Ólína Þorvarðardóttir. Verkefni hennar er sögusetur og söguslóð Spánverjavíganna 1615. Viðskiptahugmyndin er vel sett upp og einkar metnaðarfull. Ef hugmyndin verður að veruleika á hún eftir að verða samfélaginu öllu til góða. Er hún komin með góðan grunn að verkefninu og það verður áhugavert að sjá hvernig það verður þróað áfram.
Brautargengi er námskeið í gerð viðskiptaáætlana. Það er opið fyrir allar konur, hvort sem þær eru með hugmyndir sem þær vilja þróa og skoða nánar eða konur sem þegar eru í rekstri.
Hugleiðingar á mæðradaginn
Ég er að vinna að því að koma mér í þankagírinn. Er að leggja lokahönd á viðskiptaáætlunina ógurlegu, það er bara e-ð erfitt að klára....eins og það vill oft vera. Meira að segja þá var tekin vorhreingerning í dalnum í gær, veit ekki hvort það var strategísk flóttaleið eða af nauðsyn....kannski hvort tveggja.
Það er fallegur dagur í dalnum og ég bið þess að hann verði fallegur í sálinni líka. Ég er búin að vappa full mikið í skuggahliðum sálartetursins að undanförnu og er til í að verða aftur hamingjusama útgáfan af sjálfri mér. Ég vil samt ekki gera þetta að einhverri melódramatík. Er bara búin að vera sorgmædd og ekki búin að hleypa því út á reglulegum basis sem gerir mig bitra og reiða. Er búin að vera spennt og uppfull af streitu án þess að biðja um aðstoð til að komast út úr ástandinu. Svoldið á hnefanum með lífið og tilveruna. Þetta er aðlögurnarferlið, að fara úr því að vera ég....ein....stök með bakland í mömmu, yfir í að vera móðurlaus móðir. Þessi grundvallarbreyting á tilverunni hefur tekið á og kannski er kominn tími á að ég leyfi mér bara að vera þessi litla munaðarlausa, syrgja, gráta, sakna.
Undrið eins árs
Best í heimi
Maps to Ecstacy
A 5Rhythms Weekend Intensive
5Rytma helgarnámskeið 5. – 8. júní
Leysum úr læðingi dansarann sem býr í líkama okkar og njótum
gleðinnar og frelsisins sem það veitir.
Alain Allard
Alain er einstaklega góður og húmorískur kennari. Hann
hefur hlotið þjálfun og réttindi hjá Gabrielle Roth til að kenna
grunn- og framhaldsstig Rytmanna og hefur 15 ára reynslu.
Tími
Fimmtudagskvöld 5. júní kl. 18.30 – 20.30
opin kynning á Rytmunum fimm.
Föstudagskvöld kl. 18.00 – 21.30
Laugardagur kl. 11.00 – 18.00
Sunnudagur kl. 11.00 – 17.00
Verð
Helgarnámskeiðið kostar kr. 28.900
og þá er fimmtudagskvöldið innifalið.
Ef staðfest er fyrir 15. maí er verðið 25.900.
Fimmtudagskvöldið stakt kostar
3.000. 40% afsláttur fyrir
þátttakendur18 – 25 ára.
Nánari upplýsingar
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
s. 866 5527
sigurborg@ildi.is
María V. Ragnarsdóttir
s. 557 1576 / 865 9827
mariavilborg@yahoo.com
Anna S. Ólafsdóttir
s. 860 6062
annska@it.is
www.5rhythms.co.uk
www.gabrielleroth.com
Gleðilegt sumar elskurnar
Ok, eigum við aðeins að ræða fíaskóið í Bolungarvík. Mig langar að velja mér málfar sem fær guðhrædda til að sækja sápuna og þvo á mér túllan. Ég ætla að hafa það bara í hausnum samt, leiðist að tala illa um annað fólk. Ég vona bara að hún Anna Edwardsdóttir sofi vel á nóttunni. Eftir miklar breytingar á viðhorfum fólks til Bolungarvíkur undanfarin tvö ár (eftir æði mörg ár hnignunar í endastöðinni) ætlar þar að verða sama pólitíska inbreedið og þar hefur þrifist frá upphafi mannkyns, verði ykkur af því á þeim bænum. Getum við ekki fengið Grím hingað til Ísafjarðar - how about that?
Hahahhahahhahahaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
Þið verðið að afsaka að ég kann ekki að setja video hér inn - þrátt fyrir að hafa reynt ýmsar leiðir! Anyone?
Komið ;) Martha takk fyrir aðstoðina, ég hafði einmitt reynt að setja þessa slóð inn, en hafði gleymt að hlekkja hana við
Tíminn og hausinn á fullu skriði
Ég byrjaði á námskeiði í akademískum vinnubrögðum í dag, stefni ótrauð á nám í ferðamálafræði við Hólaskóla í haust. Ég er með hugann límdann við ferðaþjónustuna sem er að fæðast hér á bænum. Hugsanir eru víst til alls fyrstar - er það ekki annars?
Nokkuð hress, er að fara á reiðnámskeið um helgina í Dýrafirði og þarf eiginlega að koma blessuðu hrossinu yfir á morgun, svo ég geti e-ð aðeins reynt að koma okkur í stellingar. Hef ekki sest á bak síðan síðasta sumar og þá gerði ég nú örugglega ekki mikið af því. Fór á námskeið þegar Fróði var e-ð um tveggja mánaða og var gjörsamlega skelfingu lostin, aðeins meiri hugur í mér nú en þá. Hef verið að velta því fyrir mér hvað barnsburður gerir okkur konunum, til að mynda hálf-heilalausar svona fyrstu mánuðina eftir að litlu baunirnar koma í veröldina. Ég hefði kannski átt að hlusta á varnaðarorð Ylfu Mistar þegar hún hváði yfir því að ég ætlaði að ganga í það heilaga 6 vikum eftir að Fróði fæddist. Þar sem ég hef ekki eignast barn áður og alla jafna tel ég mig færa í flestan sjó hélt ég að það væri lítið mál að rúlla upp eins og einu brúðkaupi korteri eftir fæðingu - ég hef jú töluverða starfsreynslu við að skipuleggja hitt og þetta. Ég get sagt ykkur það núna.....svona í algerum trúnaði......að á brúðkaupsdaginn minn (og við undirbúning þess)var enginn heima á efri hæðinni hjá mér. Ráðlegg ég stórhuga konum sem vilja endilega láta spyrða sig saman við betri helminginn að hinkra allavega þangað til að ca 1/8 af áður starfandi sellum hafi tekið til starfa á nýjan leik - ekki til að fá betri kall - bara til að vera með í eigin brúðkaupi.
