Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Annska
  • Netfang: annska@it.is
  • Stađur: Arnardalur
  • Hjúskaparstađa: lofuđ
  • Um mig: Iđka lögmál ađlöđunar

Auglýsing

Myndir

Háfleyga horniđ...


Könnun

Áttu afmćli í uppáhalds árstíđinni ţinni?

@ Hólar - taka tvö!

28. september 2008 klukkan 22:32
Komin norður að spýta í lófana í náminu....en ég hef ekki verið að gera meira á þeim vígvellinum en ég hef nauðsynlega þurft!

Flaug í dag.....sem er alveg saga til næsta bæjar því ég tók TVÆR flugvélar á einum degi! Það er ekki langt síðan að ég hefði alveg þurft einn dag á milli í áfallahjálp, en merkilegt nokk þá er ég ólíkt flestum konum minna flughrædd eftir að ég varð móðir. Flugstjórinn í fyrri ferðinni var meira að segja svoooo elskulegur að láta flugvélina rétt strjúka hafflötinn allt Djúpið.....til að sýna okkur vanþakklátum lýðnum aftur í hvali í hvílíku návígi að við gátum séð á milli tannanna á þeim hvað þeir fengu sér í hádegimat! Ég held að engum hafi verið verulega skemmt yfir þessu :p
Hmmmmmm........treysti ekki netinu hérna.....best að posta svo ég tapi ekki fæsrlunni.....aftur!

Eftir törn....

21. september 2008 klukkan 23:41
Tónlistardagurinn mikli heppnaðist stórkostlega. Ég er ekkert smá sæl, hann er klárlega besta verkefni sem ég hef stýrt.....enda einvala lið með mér. Núna er ég í hálfgerðri ástarsorg, búin að vera svo gjörsamlega á kafi í þessu síðan ég kom heim. Aftur er raunveruleikinn að hitta mig.....fyndið samt.....þetta með raunveruleikann. Það er eins og ég noti hann sem lýsingarorð á ástandi á milli áhlaupa. Æj-i ég veit ekki neitt í dag! Ég ætti kannski ekkert að vera að blogga. Er bræðingur....þakklát....í smá tilvistarkreppu.

Eftir frí...

25. ágúst 2008 klukkan 22:31

raunveruleikinn er að hitta mig. Komum úr 2ja vikna fríi til Ameríku á föstudag. Mikið var það nú gott og gaman. Satt að segja langaði mig EKKERT heim. Hélt í smá stund að það væri af því að ég lifði svo leiðinlegu lífi, en það er ekki svo. Líf mitt hreint ekkert svo slæmi ;) bara svo dásamlega gott að vera í fríi. Ég held að þetta sé svoldið fullorðins, svona þegar maður er farinn að lifa meira og leika minna og svo fer maður í frí og leikur út í eitt og rifjar upp hvað það er skemmtilegt. Áhyggjur og stress í þyngdarleysi og bara þorsti eftir því að finna meira, sjá meira, hlæja meira og þorstanum svalað. Ég elska að ferðast.
Við vorum í New York fylki rétt við höfuðborgina Albany í svakalega góðu yfirlæti hjá ættingjum Úlfs sem þar búa. Síðustu dagana tókum við svo road trip um Adirondacks upp til Lake Placid og svo í gegnum Vermont til Boston. Ljómandi - mæli með fríi og hlátri og léttleika. Ég ætla að hlæja meira og gleðjast yfir smáu sem stóru.

Ég er búin að setja slatta af myndum inn á picasa...



Hersingin í garðinum hjá Margréti frænku Úlfs. Systkinin Ína, Gréta og Þói ásamt mökum, börnum, tengdabörnum og barnabörnum Ínu og Grétu.

rúntað

Fróði rúntar um með karl föður sinn.

NY

Litla familían í N.Y.......eða þannig

bakkelsi í tonnavís

24. júlí 2008 klukkan 08:15
er búin að baka....og baka....og baka....og baka. Algerlega búin að fá eldskírnina í þeirri deildinni, satt að segja orðin ansi sjóuð á skömmum tíma....þó enn eigi ég nokkuð í land ;o) Það var kökuhlaðborð sl. laugardag í Arnardal og verður aftur nú á laugardag, svo aftur á sunnudag í næstu viku. Hlaðborðið og dalaportið sem var hér um helgina gekk afbragðsvel og fengum við til okkar yfir 100 manns, voða voða kát með það.

Næstu hlaðborð verða laugardaginn 25. júlí og sunnudaginn 4. ágúst frá kl. 14-16:30.

Svo ætla ég að vera með Hlöðu-fiestu annað kvöld. Elda mexícó-mat í tortillur á muurikkunum og svo velur bara hver fyrir sig. Svo verða fullt af spilum í Fjósinu og allir ættu að geta fundið spil að sínu skapi. Þarna verður kínaskák, scrabble, Trivial Pursuit, sequence, MonoPoly, Popppunktur, sudoko, yatzy og ábyggilega einhver fleiri spil sem ég man ekki eftir í ojebliket. Komið! Dragið vinina með út og eigið góðar stundir í Arnardal. Mexíco-matur kostar 1600 og verðum við við frá 18:00.

Annars sá ég fyndna fyrirsögn áðan "Sala eða skipti á hest fyrir börn"
Spurning hvort einhver er til í að skipta púkunum fyrir reiðskjóta.

Sjáumst darlings og minni á http://arnardalur.is

Farin ađ rúlla

13. júlí 2008 klukkan 11:25
jæja....þá er það í höfn. Við erum komin með tilskilin leyfi til að reka hér veitinga- og skemmtistað í fjósinu - mikið frelsi og gaman.
Hugmyndin er að vera með Dala-port um komandi helgi, vilja ekki allir taka til í geymslunni og koma með í Arnardal og selja grimmt - smá FengSjú. Eða föndra handverk eða matvæli og selja. Ég er svo að velta fyrir mér að vera með kökuhlaðborð.
Ættarmót Arnardalsættar var okkar fyrsta verkefni hér í dalnum og það er óhætt að segja að það hefðu fleiri komist að en vildu. Ég er samt bara hress og sátt, þetta er alveg eins og það á að vera. Enda voru kynningarmálin ekki alveg í lagi og í mínum huga þetta aðallega keppikefli til að að koma okkur af stað.

kokka

Grænmetið komið á pönnuna

allt á fullt

Allt komið á Muurikkurnar góðu

snæði snæði

Bon Appetit!

Búin ađ fara norđur og niđur

05. júlí 2008 klukkan 09:57
Allt á milljón í dalnum svo við getum boðið gesti okkar velkomna um næstu helgi. Það hefur verið rokk og ról á tilfinngaskalanum með framkvæmdunum að undanförnu. Búin að vera í sjúklega dásamlegu æðruleysi - þangað til í þessari viku, þá lauk brúðkaupsferðinni og ég fór á bömmer yfir vanmættinum. Það er bara svo oft þannig að hlutirnir virðast verstir rétt áður en þeir komast á lygnan sjó.
Það er samt líka búið að vera gaman og góðirr hlutir að gerast sem fá mig til að gægjast upp úr kjallaranum öðru hvoru. Ég brunaði norður á Hóla í lok síðustu viku til að þreyta próf og fara í viðtöl í háskólanum með það fyrir augum að komast bakdyramegin inn - sem tókst, þannig að frá og með haustinu verð ég háskólamær í fjarnámi í ferðamálafræði.
Nú er mér ekki til setunnar boðið. Við Fróði ætlum að skella okkur í garðinn, þar er af nægu að taka. Góða helgi elskurnar.



Viltu dinner vćna?

25. júní 2008 klukkan 00:27
Það verður kynning á pottum og öðrum slíkum nytsemdartólum á sloti mínu í Arnardal í kvöld miðvikudag, kl. 18. Kynningin er í formi kvöldverðar - má bjóða þér að mæta? sláðu á þráðinn í 860-6062. gott að borða og skemmtilegt fólk.....getur maður beðið um meira?

Hann veit sínu viti - dance along!

20. júní 2008 klukkan 09:46
Dansaði í eldhúsinu áðan þegar ég heyrði þetta sjúklega flotta og skemmtilega lag....

">Dansið

Ahhhhhhhh

15. júní 2008 klukkan 09:41

sybbiiiiin!
Þetta er kannski ekki kristilegur tími fyrir syfju....en mér hefur þótt anzi gaman að vaka fram eftir að undanförnu og þegar maður á eins árs gamalt barn þá er það kannski ekki svo góð hugmynd. Fróða finnst ekkert gaman að vaka fram eftir og enn síður finnst honum skemmtilegt að sofa út - hann á margt ólært blessaður ;o).
Alltaf að hugsa eitthvað og er búin að vera undarlega mjúk að innan upp á síðkastið og verið þakklát fyrir lexíurnar sem lífið færir mér. Búin að vera afar lítið í því að finnast mannkindin sauðir og er það vel. Miklu skemmtilegra að vera til þegar allir eiga bara ríkulegra magn af kostum en hinu.

Af opnun á veitingastaðnum hér í dalnum er það að frétta að hlutirnir taka stundum lengri tíma en maður áætlar. Við Úlfur í eðlislægri bjartsýni okkar höldum nefnilega stundum að hlutirnir gerist allir á nóinu án fyrirhafnar. Ekki að ég finni svo mikið til fyrirhafnarinnar, meira finn ég fyrir að þeir taki tíma.....ríkulegan. Hér átti að vera ættarmót Arnardalsættar um komandi helgi en þar sem við vorum bara að finna lausn á því hvernig hægt er að koma fyrir fjórum klósettum sem hægt er að ganga inn á bæði að utan og inn úr salnum og hafa eitt fyrir fatlaða inn í rými sem var verið að föndra saman þá liggur nú ljóst fyrir að leyfismálin verða ekki í góðu swingi eftir fimm daga. Það á s.s. eftir að flota gólfin og skella upp veggjum setja upp klósettin og vaskana. Þetta verðu þá allt saman klappað og klárt innan tíðar. Síðan er verið að bíða eftir brunavarnakerfi og á eftir að klára ræstikompuna og skella eins og tveimur vöskum til viðbótar inn í risavaxna eldhúsið.

Inn á milli pikksins hér hef ég verið að hlaupa á eftir syninum þegar hann hefur komið sjálfum sér og einhverjum hlutum á heimilinu í ógöngur og viti menn bara ekkert syfjuð lengur.

lassarína-massarína

10. júní 2008 klukkan 13:23
Fór suður að dansa sem var alveg hreint yndislegt....að mestu.....nema ég varð lasin og dansaði lasin alla helgina, sem gerir aðrar kröfur til manns en að dansa æðislega hraust og hress. Ég kom heim í gærmorgun og það má segja að ég hafi sofið í sólarhring - því sem næst. Samt enn drulluslöpp og lífið og umhverfið að gera einhverjar kröfur um þátttöku af minni hálfu sem ég meika illa, en er þó að. Ekki alltaf valmöguleiki að stimpla sig út og núna er það þannig. Ég þigg alla engla sem þið kunnið að hafa á lausu og viljið senda á mig í dalinn.